Skip to main content

Posts

Showing posts with the label einstaklingsmiðað nám

Mælum læsi saman!

Heilmikil umræða hefur átt sér stað um stöðu barna og íslensku skólana. Tölur um læsi fara áfram hnignandi, ádeila á leshraðapróf eykst og töluverðar upphrópanir viðhafðar almennt um ómögulegt skólastarf. Við í Ásgarði vinnum alla daga að því að styðja kennara og skólastjórnendur og stundum sveitastjórnarmenn í því að finna leiðir til þess að bæta almenna kennslu og skólastarf. Skólastjórnendur í tugavís og kennarar í hundraðavís ígrunda á hverjum degi hvað má betur fara og hvaða leiðir eru færar til þess að bæta stöðuna – það getum við staðfest. En rétt er að það má gera betur.  Samkvæmt þeim mælingum sem við nýtum okkur er staða fjölmargra barna og þá sérstaklega drengja komin að þolmörkum og það er óviðunandi. Við getum nefnilega öll brugðist við núna – það er engin ástæða til að bíða – við getum öll brugðist við strax, ekki bara kennararnir – heldur foreldrarnir og samfélagið allt. Læsi er íslenskan, læsi er samskipti, ritun, samræða og tjáning sem við getum öll eflt í daglegum...

Kristrún hjá Kristjáni á Sprengisandi

Kristrún brá sér í stúdíó á Bylgjunni ásamt Ingibjörgu Ösp Stefánsdóttur forstöðumaður hjá SA þar sem Kristján Kristjánsson tók á móti þeim. Við ræddum um stafrænt menntakerfi og tækifæri sem skapast við stafræna þróun í menntamálum og hvernig tækni og góður grunnur getur orðið til þess að umbreyta starfsumhverfi kennara og námi barna og fullorðinna. Þessi þáttu er upphitun fyrir Menntadag atvinnulífsins sem haldinn verður á morgun mánudaginn 25. apríl í Hörpunni. Kristrún verður þar og heldur umræðunum áfram.

Af því að börnin okkar eru öll stórkostleg – byggjum á styrkleikum þeirra

Við brennum fyrir einstaklingsmiðuðu / sérsniðnu námi, okkar leiðarljós í öllu okkar starfi hvetjum við til þess að í auknum mæli velji skólar aðferðir sem eru líklegri en aðrar til þess að koma betur til móts við þarfir nemenda helst á heildstæðan máta. Nánast allt í lífi barna og ungmenna í dag er einstaklingsmiðað/sérsniðið . Þau horfa á sérsniðna dagskrá í sjónvarpinu, þau velja sér íþróttir sem þau vilja stunda, þau velja sér vini og fréttaveiturnar þeirra á Musically, Snapchat og Instagram er sérsniðið út frá þeirra hegðun á netinu – með “dass” af áhrifum frá fylgjendum og vinum. Þegar þau svo koma í skólann er þeim flestum réttar eins námsbækur – oft fá heilu árgangarnir sömu bókina og fylla síðan inn í verkefnabókina sem fylgir með. Allir fá eins – kannski fá þau að fara mishratt yfir- eða sleppa einhverju. Sem sagt – líklega eitt af mjög fáu í þeirra lífi sem er almennt ekki sérsniðið að þeirra þörfum eða áhuga ( og hér er nýjasta skýrslan sem staðfestir að við erum almennt ...