Skip to main content

Posts

Showing posts with the label Grunnskólar

Sænska og norska í stað dönsku fyrir unglingastig - nokkur pláss laus!

  Sænska og norska í stað dönsku  Fyrir nemendur á unglingastigi  Kennsla hefst mánudaginn 26. ágúst kl. 15.00 Við hjá Ásgarði skólaþjónustu höfum verið að reka Tungumálaskóla fyrir Akureyrarbæ undanfarin misseri. Við erum með nokkur laus pláss í sænsku og norsku sem okkur langar að bjóða ykkur að nýta ef þið eruð með nemendur sem ættu að vera í þeim fögum.   Kennsla í norsku og sænsku hefst þann 26. ágúst kl. 15.00 í Tungumálaskólanum sem er fjarskóli fyrir nemendur sem eru undanþegnir dönskunámi. Starfsfólk á vegum skóla og ráðgjafarþjónustunnar Ásgarðs (www.ais.is) sér um kennsluna og alla umsýslu. Tímarnir verða á mánudögum milli klukkan 15.00 og 16.00 fram á vor. Við gerum ráð fyrir að nemendur vinni sjálfstætt á milli kennslustunda og geti vonandi nýtt tímann í skólanum á meðan aðrir nemendur eru í dönsku. Hver nemandi fylgir því skóladagatali sem á við þann skóla sem viðkomandi er skráður í.  Öll kennsla fer fram á netinu sem þýðir að gert er ráð ...

Hvað er góður skóli? Gæðastarf í leik- og grunnskólum á mannamáli

Tímamóta ráðstefna um menntamál: „Hvað er góður skóli?“ Gæðastarf í leik- og grunnskólum á mannamáli verður haldin þann 12. apríl næstkomandi í Hofi á Akureyri. Ráðstefnan er ætluð sveitarstjórnarfólki, kennurum, starfsfólki skóla, áhugafólki um skólastarf, foreldrum og nemendum. Dagskráin hefst kl. 09.00 og lýkur um kl. 16.00. Ráðstefnugjaldið er aðeins 3.900 krónur og hægt er að tryggja sér miða hér . Skólaráðgjafaþjónustan Ásgarður stendur fyrir ráðstefnunni. Á ráðstefnunni koma fram kennarar, skólastjórnendur, ráðgjafar og stjórnendur sveitarfélaga sem þekkja vel notkun gæðaviðmiða til þess að efla gæði skólastarfs. Hagnýt ráð og leiðbeiningar á mannamáli sem henta öllum sem vilja auka gæði nútíma skólastarfs. Þetta er einstakt tækifæri fyrir sérfræðinga, kennara, skólastjórnendur, foreldra og nemendur til að koma saman og ræða gæði og mikilvægi menntunar í nútíma samfélagi. Við hvetjum alla áhugasama um gott skólastarf í leik- og grunnskólum á Íslandi til að mæta og taka þátt í þe...

Námsvísar - Vegvísar náms í grunnskólum

Ráðgjafar Ásgarðs hafa frá árinu 2017 aðstoðað skóla við að innleiða námsvísa þar sem grunnþættir menntunnar marka áherslur vetrarins í sex meginþemum yfir skólaárið. Námsvísarnir eru sjónrænt skipulag á fyrirhuguðu námi skólaársins og eru gjarnan gerðir í þriggja til fjögurra ára rúllum.  Námsvísar eru einföld leið til þess að ákveða þau megin námsmarkmið sem fyrirhugað er að eigi sér stað á komandi skólaári. Námsvísarnir eins og þeir hafa verið settir fram með samstarfsskólum Ásgarðs gera ráð fyrir því að sex eða færri meginþemu leiði námið á skólaárinu með grunnþætti menntunnar að leiðarljósi. Þannig hafa grunnþættir menntunnar skýr áhrif á val náms í viðkomandi skóla eða á viðkomandi skólastigi.  Á undanförnum árum hafa bæst við kennarateymi sem innan skólanna nýta sér námsvísa til þess að koma sér saman um nám vetrarins og með tímanum safnast námsvísar saman í nokkura ára rúllur sem verða lagðar til grundvallar í framtíðar skipulagi.  Fyrirmynd námsvísanna er að finn...

Lærissneið – Múrarnir rofnir

Við sem erum alin upp í fámennum grunnskólum vitum að það eru bæði kostir og gallar sem fylgja því að hrærast í fámennu skólasamfélagi. Kostnir eru yfirleitt mjög margir en það getur verið erfitt að koma til móts við fjölbreyttar þarfir barna til dæmis er varðar aðgang að valgreinum og sérhæfðari námsgreinar. Ég man eftir því að hafa klórað mér í hausnum yfir valgreinunum þegar ég var skólastjóri á Flateyri fyrir óralöngu síðan, hvernig í ósköpunum er hægt að bjóða upp á valgreinar við hæfi þegar nemendur á unglingastigi eru mögulega tólf eða færri í 8.-10 bekk?  Á síðasta skólaári fengum við í Ásgarði veglegan styrk frá SSNE til þess að þróa kennslu í Skóla í skýjunum sem nýttist meðal annars í að útbúa miðlægt tvær valgreinar, önnur var tölvuleikjahönnun með Unity og hin var bókagerð. Nemendur úr níu skólum í þremur hópum komu saman á netinu yfir heila önn. Tilraunin heppnaðist vel og saman lærðum við, skólastjórnendur og kennarar mjög margt um nauðsynlegan aðbúnað og stuðning ...

Af því að börnin okkar eru öll stórkostleg – byggjum á styrkleikum þeirra

Við brennum fyrir einstaklingsmiðuðu / sérsniðnu námi, okkar leiðarljós í öllu okkar starfi hvetjum við til þess að í auknum mæli velji skólar aðferðir sem eru líklegri en aðrar til þess að koma betur til móts við þarfir nemenda helst á heildstæðan máta. Nánast allt í lífi barna og ungmenna í dag er einstaklingsmiðað/sérsniðið . Þau horfa á sérsniðna dagskrá í sjónvarpinu, þau velja sér íþróttir sem þau vilja stunda, þau velja sér vini og fréttaveiturnar þeirra á Musically, Snapchat og Instagram er sérsniðið út frá þeirra hegðun á netinu – með “dass” af áhrifum frá fylgjendum og vinum. Þegar þau svo koma í skólann er þeim flestum réttar eins námsbækur – oft fá heilu árgangarnir sömu bókina og fylla síðan inn í verkefnabókina sem fylgir með. Allir fá eins – kannski fá þau að fara mishratt yfir- eða sleppa einhverju. Sem sagt – líklega eitt af mjög fáu í þeirra lífi sem er almennt ekki sérsniðið að þeirra þörfum eða áhuga ( og hér er nýjasta skýrslan sem staðfestir að við erum almennt ...