Skip to main content

Posts

Viðtal við Kristrúnu

  Viðtal við Kristrúnu Ásdís Ásgeirsdóttir kom í heimsókn í september og tók viðtal við Kristrúnu sem birtist í Morgunblaðinu Sunnudaginn 19. september 2020. Hressandi viðtal. Smellið á hlekkinn til að lesa viðtalið í heild sinni. „Ég vil geta litið til baka og horft yfir landið og sagt: „Við stuðluðum að þess­um breyt­ing­um.“ Mér líður eins og ég sé að pota í einmanna risa, sem er samt vel í hold­um og hef­ur allt til alls, en það þarf samt aðeins að pota í hann svo hann standi upp og hristi af sér slenið. Við erum í smá tog­streitu; skól­arn­ir og við hin,  það er smá tabú í kring­um þetta. Við þurf­um bara að vinna öll sam­an til að gera þetta ótrú­lega vel. Og not­um rann­sókn­ir sem búið er að vinna í öll þessi ár. Þá verður allt far­sælt.“ https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020/09/19/ad_pota_i_risann/

Ásgarður – Erindi á morgunverðarfundi Sambands Íslenskra sveitarfélaga. Erum við á réttu róli með skólann?

  Ásgarður – Erindi á morgunverðarfundi Sambands Íslenskra sveitarfélaga. Erum við á réttu róli með skólann? Kristrún flutti erindi á morgunverðafundi Sambandsins um skólamál. Umræða sem hófst fyrir ári síðan á skólamálaþingi sambandsins. https://youtu.be/zyn5mM6Z3QA

Sviðsmyndin "fjarnám og kennsla fyrir alla" - getur jafnað aðgengi barna að námi tímabundið

  Sviðsmyndin "fjarnám og kennsla fyrir alla" - getur jafnað aðgengi barna að námi tímabundið Grunnskólar geta jafnað aðgengi nemenda að námi og lágmarkað smithættu með fjarnámi og kennslu. Ein leið til þess að bregðast við þessu fordæmalausa ástandi í samkomubanni er að taka upp fjarnám og kennslu fyrir alla nemendur og gera ekki greinarmun á nemendum sem mæta í skólann og þeim sem eru heima . Þá er hreinlega hægt að mælast til þess að þau börn sem geta verði heima að miklu leyti. Einhverjir munu kjósa að halda börnunum sínum heima og svo auðvitað þau sem eru viðkvæm fyrir og verða eðli málsins samkvæmt að vera heima. Kennarar og forsvarsmenn skólanna geta skipulagt að nemendur komi í skólann í smærri hópum og hitta kennarann sinn og jafnvel nokkra aðra nemendur í senn. Þetta gætu verið stuttir fundir, göngur eða útileikir eða kennsla eða allt í bland. Þannig er líka hægt að nýta starfskrafta þeirra kennara sem eru viðkvæmir heilsufarslega fyrir. Það er þá ekki gerður grein...

Lykill að fjarkennslu og fjarnámi á grunnskólastigi #COVID-19

  Lykill að fjarkennslu og fjarnámi á grunnskólastigi #COVID-19 Síðustu þrjú skólaár höfum við hjá Tröppu ráðgjöf kennt nemendum á mið- og unglingastigi "í fjar" eins og við köllum það. Nemendur hafa ýmist stundað nám alfarið heiman frá sér eða mætt að einhverju leyti í skólann sinn og stundað nám í fjar að hluta til. Þessi þrjú ár hafa verið okkur dýrmæt og afar mikilvæg reynsla safnast í sarpinn.  Í haust ætlum við að stíga skrefið til fulls og opna grunnskóla fyrir nemendur á unglingastigi sem geta þá alfarið stundað nám óháð staðsetningu. Skólinn heitir Ásgarður og nú þegar er tekið við umsóknum - eina inntökuskilyrðið er að viðkomandi nemandi hafi aldur til að vera á unglingastigi, eða hafi náð 7. bekkjar hæfniviðmiðum - hafi trú á sjálfum sér og hafi vilja til þess að vinna sjálfstætt og með öðrum. Nemendur geta lokið unglingastiginu á tveimur til þremur árum í Ásgarði.  Í ljósi þess að nú hafi verið lýst yfir neyðarástandi vegna heimsfaraldurs COVID-19 veirunnar ...

Hvernig varð skólinn Ásgarður til?

  Hvernig varð skólinn Ásgarður til? Síðastliðin þrjú ár höfum við hjá Tröppu skólaþjónustu kennt nemendum í nokkrum fámennum skólum á landinu. Í gegnum þá vinna hefur skapast dýrmæt reynsla við að útfæra aðalnámskrá grunnskóla í gegnum fjarnám og kennslu. Nú hefur fjarkennslan verið klofin út úr skólaþjónustunni og skólinn Ásgarður er orðinn að veruleika. Það lá ekki alveg beint við að opna skóla sem væri alfarið óháður staðsetningu. Í mörg ár hefur það flækst fyrir okkur hvernig best væri hægt að tryggja aðgengi nemenda að gæða námi og kennslu t.d. þeim nemendum sem búa langt frá skólum eða eru mikið á ferðinni. Á sama tíma hefur það verið draumur að vinna að alþjóðlegri fyrirmynd og sauma saman alþjóðlega hæfnimiðaða námskrá og Aðalnámskrá grunnskóla og margar hugmyndir verið uppi um hvernig og hvenær væri best að fara af stað með það. Á einum af löngum bílferðum fæddist Ásgarður. Í vetur tókum við á móti nemanda í 10. bekk sem stefnir á að ljúka markmiðum grunnskólans í fjarná...

Íslenskuþjálfarinn

  Íslenskuþjálfarinn Frá því snemma árs 2019 hefur starfsfólk Tröppu ráðgjafar (nú Ásgarðs) unnið að því að þróa og prófa fjarnáms- og kennsluleið til þess að þjálfa fólk með annað tungumál en íslensku að móðurmáli í að tala íslensku. Hugmyndin var að bregðast þyrfti við aukinni eftirspurn eftir öðrum leiðum en hefðbundnum íslenskunámskeiðum sem byggja mikið til á bóklegu námi, til að styðja við fólk sem hingað sækir í auknum mæli með starfsháttum sem væru afslappaðir, byggðu ekki á málfræðikennslu og skriflegu námi nema að litlu leyti heldur samskiptum fyrst og fremst. Mikilvægur hvati að verkefninu var einnig að nýta þá sérþekkingu sem býr í sérhverjum íbúa sem getur talað íslensku og að verið væri að skapa nútíma atvinnutækifæri óháð staðsetningu þar sem eina skilyrðið til að geta orðið íslenskuþjálfari væri einfaldlega að tala íslensku! Unnið er útfrá hugmyndafræði í tungumálakennslu sem byggir fyrst og fremst á samskiptum sem þjóna tilganginum að gera sig skiljanlega. Litið er...

Kristrún skrifar; Hvernig geta minnstu skólar landsins skarað frammúr?

  Kristrún skrifar; Hvernig geta minnstu skólar landsins skarað fram úr? Af visi.is - Mín skoðun; Kristrún skrifar þann 9. september sl. "Tækifæri felast í því að nýta sameininguna til að koma til móts við þarfir net fæddra barna með markvissu samstarfi og samvinnu allra sem að skólastarfinu koma. Með öðrum orðum, með færri sveitarfélögum gefst tækifæri til þess að búa til nýja stafræna innviði á milli starfsfólks og nemenda í fámennum leik- og grunnskólum en slíkt þarf að gera tímanlega og markvisst ef sameiningin á ekki að verða til þess að kippa fótunum undan rekstri og skólastarfi fámennra skóla." Öll greinin er aðgengileg hér.