Skip to main content

Viðtal við Kristrúnu

 

Viðtal við Kristrúnu

Ásdís Ásgeirsdóttir kom í heimsókn í september og tók viðtal við Kristrúnu sem birtist í Morgunblaðinu Sunnudaginn 19. september 2020. Hressandi viðtal. Smellið á hlekkinn til að lesa viðtalið í heild sinni.

„Ég vil geta litið til baka og horft yfir landið og sagt: „Við stuðluðum að þess­um breyt­ing­um.“ Mér líður eins og ég sé að pota í einmanna risa, sem er samt vel í hold­um og hef­ur allt til alls, en það þarf samt aðeins að pota í hann svo hann standi upp og hristi af sér slenið. Við erum í smá tog­streitu; skól­arn­ir og við hin,  það er smá tabú í kring­um þetta. Við þurf­um bara að vinna öll sam­an til að gera þetta ótrú­lega vel. Og not­um rann­sókn­ir sem búið er að vinna í öll þessi ár. Þá verður allt far­sælt.“

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020/09/19/ad_pota_i_risann/


Comments

Vinsælt

Sænska og norska í stað dönsku fyrir unglingastig - nokkur pláss laus!

  Sænska og norska í stað dönsku  Fyrir nemendur á unglingastigi  Kennsla hefst mánudaginn 26. ágúst kl. 15.00 Við hjá Ásgarði skólaþjónustu höfum verið að reka Tungumálaskóla fyrir Akureyrarbæ undanfarin misseri. Við erum með nokkur laus pláss í sænsku og norsku sem okkur langar að bjóða ykkur að nýta ef þið eruð með nemendur sem ættu að vera í þeim fögum.   Kennsla í norsku og sænsku hefst þann 26. ágúst kl. 15.00 í Tungumálaskólanum sem er fjarskóli fyrir nemendur sem eru undanþegnir dönskunámi. Starfsfólk á vegum skóla og ráðgjafarþjónustunnar Ásgarðs (www.ais.is) sér um kennsluna og alla umsýslu. Tímarnir verða á mánudögum milli klukkan 15.00 og 16.00 fram á vor. Við gerum ráð fyrir að nemendur vinni sjálfstætt á milli kennslustunda og geti vonandi nýtt tímann í skólanum á meðan aðrir nemendur eru í dönsku. Hver nemandi fylgir því skóladagatali sem á við þann skóla sem viðkomandi er skráður í.  Öll kennsla fer fram á netinu sem þýðir að gert er ráð ...

Námsvísar - Vegvísar náms í grunnskólum

Ráðgjafar Ásgarðs hafa frá árinu 2017 aðstoðað skóla við að innleiða námsvísa þar sem grunnþættir menntunnar marka áherslur vetrarins í sex meginþemum yfir skólaárið. Námsvísarnir eru sjónrænt skipulag á fyrirhuguðu námi skólaársins og eru gjarnan gerðir í þriggja til fjögurra ára rúllum.  Námsvísar eru einföld leið til þess að ákveða þau megin námsmarkmið sem fyrirhugað er að eigi sér stað á komandi skólaári. Námsvísarnir eins og þeir hafa verið settir fram með samstarfsskólum Ásgarðs gera ráð fyrir því að sex eða færri meginþemu leiði námið á skólaárinu með grunnþætti menntunnar að leiðarljósi. Þannig hafa grunnþættir menntunnar skýr áhrif á val náms í viðkomandi skóla eða á viðkomandi skólastigi.  Á undanförnum árum hafa bæst við kennarateymi sem innan skólanna nýta sér námsvísa til þess að koma sér saman um nám vetrarins og með tímanum safnast námsvísar saman í nokkura ára rúllur sem verða lagðar til grundvallar í framtíðar skipulagi.  Fyrirmynd námsvísanna er að finn...

Persónumiðað skólastarf fyrir öll börn - Það ER góður skóli

Gæði Ásgarðsskóla, skóla í skýjunum hafa verið staðf est, með ytra mati MMR og auðvitað líka með kerfisbundnu innra mati. Námið í skólanum er í samræmi við stefnu skólans, það er sniðið að persónulegum þörfum nemenda, það er unnið lýðræðislega með nemendum, foreldrum og starfsfólk fær þann stuðning sem þarf og innra mat uppfyllir sett skilyrði. Í Ásgarðsskóla er stefnan skýr. Hún hverfist um allt skólastarfið og birtist á hverjum degi í verkefnum nemenda og kennara. Verkaskipting í skólastjórninni er kannski óvenjuleg að einhverju leyti en uppfyllir samt ströngustu skilyrði. Einn sér um fjármál og rekstur og hefur yfirumsjón með gæðamálum . Annar er skólastjóri nemendanna, starfsfólksins og foreldranna og þriðji stjórnandinn er námskrárstjóri .  Fundir eru skipulagðir með stífri fundaáætlun í hverri viku sem aldrei eru felldir niður. Skýr verkaskipting er líka á milli kennara sem byggja á styrkleikum þeirra og kennarar sitja eins fáa fundi og mögulegt er. Það þýðir ekki að kennara...