Skip to main content

Posts

Kristrún hjá Kristjáni á Sprengisandi

Kristrún brá sér í stúdíó á Bylgjunni ásamt Ingibjörgu Ösp Stefánsdóttur forstöðumaður hjá SA þar sem Kristján Kristjánsson tók á móti þeim. Við ræddum um stafrænt menntakerfi og tækifæri sem skapast við stafræna þróun í menntamálum og hvernig tækni og góður grunnur getur orðið til þess að umbreyta starfsumhverfi kennara og námi barna og fullorðinna. Þessi þáttu er upphitun fyrir Menntadag atvinnulífsins sem haldinn verður á morgun mánudaginn 25. apríl í Hörpunni. Kristrún verður þar og heldur umræðunum áfram.

Sköpun og leiðsagnarnám í Bolungarvík

Við í Ásgarði erum stolt af samstarfi okkar við skóla víða um land. Síðan í haust hefur margt breyst hjá okkar samstarfsskólum og er það ekki síst skapandi og skemmtileg verkefni í bland við skýr tengsl við markmið aðalnámskrá og leiðsagnarnám sem hafa haft þau áhrif. Verkefnin okkar byggja öll á samþættingu faggreina, sköpun og mörg þeirra á samvinnu nemenda og áherslum á að nemendur læri að rödd þeirra skipti máli. Nemendur eiga að læra að þeir geta haft áhrif til góðs og að skoðanir þeirra þurfi að heyrast. Við tókum viðtal við kennara á miðstigi í grunnskóla Bolungarvíkur. Þar hefur lengi verið mikið gróska og samstarf við okkur m.a. hjálpað þeim að fóta sig á auðveldan hátt varðandi námsmat byggt á leiðsagnarnámi. Kennararnir voru að vinna með verkefnið okkar Betri heimabyggð, sem byggir á hugmyndafræði um að nemendur sjái möguleika í eigin umhverfi. Svona verkefni henta vel í dreifbýli eða minni þéttbýli þar sem hagur samfélagsins liggur í mannauðnum sem þar ákveður að setjast a...

Náms- og verkefnabækur - við getum gert betur

Fyrir um tveimur árum skrifaði Rósa Eggertsdóttir læsissérfræðingur mjög góða grein sem birtist í Stundinni og hét Um inniviði og 16.000 kennslustundir . Það er óhætt að mæla með lestri þessarar greinar sem fjallar um slaka útkomu ungmenna okkar í Pisa könnunum. Það er eitt og annað sem þarf að ræða betur eða ítarlegra sem kemur fram þarna eins og mikilvægi þess að fjölga tímum í íslensku. Það eru nú þegar ansi margir íslenskutímar en það vantar algjörlega að skoða gæði þeirra. Svo er líka spurning hvort að það sé mikilvægt að hafa alla þessa íslenskutíma ef að þeir skila ekki betri árangri en þetta. Það er nefnilega betra að gera alla tíma að íslenskutíma ef að við ætlum að bæta kunnáttu nemenda. Það skiptir ekki öllu máli að nemandi geti sýni lesskilning í íslensku ef að það færist ekki yfir á önnur fög. Nýverið var undirrituð með fyrirlestur um samþættingu og þar kom fram viðhorf raungreinakennara sem taldi það ekki vera innan síns verksvið að meta íslenskukunnáttu nemenda. Gott og...

Styrkur vegna heimaskóla - Iceland Lichenstein Norway grants

Nú í desember fengu við þær gleðifréttir að við fengum veglegan styrk til að búa til heimaskóla í samvinnu og samstarfi við tvo pólska skóla og eina ráðgjafaþjónustu. Verkefnið gegnur út á að þróa, prófa og útfæra heimaskóla í samvinnu og samstarfi við foreldra á Póllandi og á Íslandi. Með tilraunaskólaleyfi skóla í skýjunum og tilkomu Námsgagnatorgsins getum við gert tilraunir sem munu með tímanum breyta hefðbundnu landslagi grunnskólamála. Við erum spennt og gríðarlega þakklát traustinu sem fylgir því að fá að útfæra skemmtileg og skapandi verkefni með okkar eigin fólki og vinum okkar í Póllandi. Við óskum hér með eftir fjölskyldum til að vinna þessa tilraun með okkur fyrir skólaárið 2022 til 2023. Áhugamir vinsamlegast sendið póst á kristrun@ais.is. Gleðilegt nýtt og spennandi ár Kristrún Lind Birgisdóttir Stofnandi og eigandi Ásgarðs og skóla í skýjunum. 

Nýr skólastjóri Ásgarðs - skóla í skýjunum

Esther Ösp Valdimarsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri Ásgarðs - skóla í skýjunum. Hún tekur við starfinu í dag 1. desember. Esther er með MA í mannfræði með áherslu á börn og kynjafræði auk kennsluréttinda. Esther hefur áratuga reynslu af vinnu með ungmennum, í félagsmiðstöðvum og í kennslu og barnavernd svo fátt eitt sé nefnt. Esther hefur starfað að rannsóknum á högum ungmenna út frá kynjuðu sjónarhorni. Hún hefur hlotið hvatningarverðlaun fyrir framlag til menningarmála og er óþreytandi í að leggja sig fram um að breyta tækifærum ungs fólks svo um munar.  Við óskum Esther til hamingju og hlökkum til að vinna með henni að því að gjörbreyta aðgengi barna að námi.

Ásgarður – Erindi á morgunverðarfundi Sambands Íslenskra sveitarfélaga. Erum við á réttu róli með skólann?

Kristrún flutti erindi á morgunverðafundi Sambandsins um skólamál. Umræða sem hófst fyrir ári síðan á skólamálaþingi sambandsins. https://youtu.be/zyn5mM6Z3QA

Read aloud STEM

Það heyrist oft í umræðunni að ástæða þess að drengir hafi slakan lesskilning sé að þeir lesi ekki nóg. Fyrir ansi mörgum árum fékk ég spurningu frá föður eins nemandans í umsjónarbekknum um hvernig væri hægt að bæta árangur hans á lesskilningsprófum. Ég nefndi að eina leiðin væri að lesa texta, lesa bækur eða tímarit. Faðirinn svaraði því til að drengir lesi ekki í dag og spurði hvað annað væri hægt að gera. Það sést á þessari spurningu og svari foreldrisins að það sem skipti máli var útkoma drengsins úr prófi en ekki áhyggjur af því að sonurinn les aldrei neitt og var með slakan lesskilning í öllu námi. Annað sem heyrist oft er að nemendur sjái ekki tilgang í því sem við erum að gera og geri því ekkert. Ég hef sjálf nefnt það þegar ég tala um bráðgera nemendur, því ég hef séð að það hjálpar oft að útskýra tilgang verkefna fyrir þeim til að þeir nenni að gera þau. Eitt sem hjálpar er að vera með skýrar verkefnalýsingar, skýr námsmarkmið (hvað á nemandinn að læra?) og flott viðmið um á...