Skip to main content

Posts

Hvað er góður skóli? Gæðastarf í leik- og grunnskólum á mannamáli

Tímamóta ráðstefna um menntamál: „Hvað er góður skóli?“ Gæðastarf í leik- og grunnskólum á mannamáli verður haldin þann 12. apríl næstkomandi í Hofi á Akureyri. Ráðstefnan er ætluð sveitarstjórnarfólki, kennurum, starfsfólki skóla, áhugafólki um skólastarf, foreldrum og nemendum. Dagskráin hefst kl. 09.00 og lýkur um kl. 16.00. Ráðstefnugjaldið er aðeins 3.900 krónur og hægt er að tryggja sér miða hér . Skólaráðgjafaþjónustan Ásgarður stendur fyrir ráðstefnunni. Á ráðstefnunni koma fram kennarar, skólastjórnendur, ráðgjafar og stjórnendur sveitarfélaga sem þekkja vel notkun gæðaviðmiða til þess að efla gæði skólastarfs. Hagnýt ráð og leiðbeiningar á mannamáli sem henta öllum sem vilja auka gæði nútíma skólastarfs. Þetta er einstakt tækifæri fyrir sérfræðinga, kennara, skólastjórnendur, foreldra og nemendur til að koma saman og ræða gæði og mikilvægi menntunar í nútíma samfélagi. Við hvetjum alla áhugasama um gott skólastarf í leik- og grunnskólum á Íslandi til að mæta og taka þátt í þe...

Námsvísar - Vegvísar náms í grunnskólum

Ráðgjafar Ásgarðs hafa frá árinu 2017 aðstoðað skóla við að innleiða námsvísa þar sem grunnþættir menntunnar marka áherslur vetrarins í sex meginþemum yfir skólaárið. Námsvísarnir eru sjónrænt skipulag á fyrirhuguðu námi skólaársins og eru gjarnan gerðir í þriggja til fjögurra ára rúllum.  Námsvísar eru einföld leið til þess að ákveða þau megin námsmarkmið sem fyrirhugað er að eigi sér stað á komandi skólaári. Námsvísarnir eins og þeir hafa verið settir fram með samstarfsskólum Ásgarðs gera ráð fyrir því að sex eða færri meginþemu leiði námið á skólaárinu með grunnþætti menntunnar að leiðarljósi. Þannig hafa grunnþættir menntunnar skýr áhrif á val náms í viðkomandi skóla eða á viðkomandi skólastigi.  Á undanförnum árum hafa bæst við kennarateymi sem innan skólanna nýta sér námsvísa til þess að koma sér saman um nám vetrarins og með tímanum safnast námsvísar saman í nokkura ára rúllur sem verða lagðar til grundvallar í framtíðar skipulagi.  Fyrirmynd námsvísanna er að finn...

Sagan af Askinum og yfirlit yfir hæfniviðmið

Askurinn, námsumsjónarkerfi og námsgagnatorg Ásgarðs skólaráðgjafar, er í stöðugum vexti. Það hefur verið ótrúlega skemmtilegt að þróa Askinn á síðustu árum, þó það reyni stundum á þolinmæðina. Í upphafi varð Askurinn til út frá samstarfi við grunnskólakennara sem við hjá Ásgarði skólaráðgjöf höfum verið svo heppin að vinna með á síðustu árum. Verkefni okkar sem skólaráðgjafaþjónustu er og hefur alltaf verið að styðja við kennara og stjórnendur í leik- og grunnskólum víða um land til að efla gæðastarf og innleiða skólastefnur sveitarfélaganna og ríkisins inn í starfsemi skólanna. Upphaf Asksins í núverandi mynd má rekja til ársins 2016. Þá eru Heiða forstjóri Learncove og teymið hennar að búa til kerfi fyrir grunnskóla til að efla gæðanám og koma til móts við fjölbreyttar þarfir nemenda. Við ræddum mikið við Heiðu um hvernig miðlægt námsgagnatorg, gagnagrunnur og tenging við hæfniviðmið og gögn Menntamálastofnunar gætu verið miðja þess sem kennarar þurfa til að fyrirmyndar skólastarf g...

Skóli í skýjunum óskar eftir kennara í fullt starf - 3. maí 2023

  Umsækjendum er bent á að kynna sér vel stefnu skólans, námsvísi og skólanámskrá á heimasíðu skólans. Vinsamlegast sendið umsóknir á netfangið asgardur@asgardsskoli.is fyrir 15. maí nk.

LÆRVEST - Verklok og ráðstefnugögn

Það voru stoltir kennarar og ráðgjafar sem fögnuðu vel heppnaðri ráðstefnu sem 120 gestir sóttu föstudaginn 14. apríl síðastliðinn á Grand Hotel í Reykjavík. Rúmlega áttatíu kennarar úr sjö grunnskólum á Vestfjörðum hafa starfað saman í tvö ár að því að koma auga á gæði í eigin starfi og var afraksturinn kynntur á ráðstefnunni. Framtakið hefur vakið athygli víða og mikið spurt um ráðstefnugögnin. LÆRVEST samstarfsverkefnið var styrkt af Sprotasjóði fyrir skólaárin 2021-2023, verkefnastjóri var Ásdís Snót Guðmundsdóttir skólastjóri Patreksskóla og ráðgjafar Ásgarðs sáu um kennsluráðgjöf. Hér fyrir neðan er hægt að sækja og skoða glærur fyrirlesaranna ef einhverjir vilja nýta sér hugmyndirnar. Myndböndin hafa verið fjarlægð úr glærunum og nöfn og andlit barnanna verið hulin. LÆRVEST er komið til að vera - á næsta ári er stefnan tekin á Hof á Akureyri þar sem fyrirhugað er að gefa enn fleiri kennurum kost á að deila gæðarýndum verkefnum sínum með öðrum kennurum. Fylgist með - hægt er að s...

Mælum læsi saman!

Heilmikil umræða hefur átt sér stað um stöðu barna og íslensku skólana. Tölur um læsi fara áfram hnignandi, ádeila á leshraðapróf eykst og töluverðar upphrópanir viðhafðar almennt um ómögulegt skólastarf. Við í Ásgarði vinnum alla daga að því að styðja kennara og skólastjórnendur og stundum sveitastjórnarmenn í því að finna leiðir til þess að bæta almenna kennslu og skólastarf. Skólastjórnendur í tugavís og kennarar í hundraðavís ígrunda á hverjum degi hvað má betur fara og hvaða leiðir eru færar til þess að bæta stöðuna – það getum við staðfest. En rétt er að það má gera betur.  Samkvæmt þeim mælingum sem við nýtum okkur er staða fjölmargra barna og þá sérstaklega drengja komin að þolmörkum og það er óviðunandi. Við getum nefnilega öll brugðist við núna – það er engin ástæða til að bíða – við getum öll brugðist við strax, ekki bara kennararnir – heldur foreldrarnir og samfélagið allt. Læsi er íslenskan, læsi er samskipti, ritun, samræða og tjáning sem við getum öll eflt í daglegum...

Byggðaráðstefnan 2021; Skóli í skýjunum – skóli á jörðu niðri

Kristrún flutti erindi á Byggðaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga og Byggðastofnunnar 27. október 2021. Erindi Kristrúnar fjallaði um skólastarf og byggðamál. Yfirskrift ráðstefnunnar var Menntun án staðsetningar en ráðstefnan fór fram á Hótel Kötlu, Höfðabrekku í Mýrdal. Ráðstefnuna í heild sinni má sjá hér. https://www.byggdastofnun.is/is/moya/page/byggdaradstefnan-2021 og glærur Kristrúnar er að finna hér .