Skip to main content

Posts

Náms- og verkefnabækur - við getum gert betur

Fyrir um tveimur árum skrifaði Rósa Eggertsdóttir læsissérfræðingur mjög góða grein sem birtist í Stundinni og hét Um inniviði og 16.000 kennslustundir . Það er óhætt að mæla með lestri þessarar greinar sem fjallar um slaka útkomu ungmenna okkar í Pisa könnunum. Það er eitt og annað sem þarf að ræða betur eða ítarlegra sem kemur fram þarna eins og mikilvægi þess að fjölga tímum í íslensku. Það eru nú þegar ansi margir íslenskutímar en það vantar algjörlega að skoða gæði þeirra. Svo er líka spurning hvort að það sé mikilvægt að hafa alla þessa íslenskutíma ef að þeir skila ekki betri árangri en þetta. Það er nefnilega betra að gera alla tíma að íslenskutíma ef að við ætlum að bæta kunnáttu nemenda. Það skiptir ekki öllu máli að nemandi geti sýni lesskilning í íslensku ef að það færist ekki yfir á önnur fög. Nýverið var undirrituð með fyrirlestur um samþættingu og þar kom fram viðhorf raungreinakennara sem taldi það ekki vera innan síns verksvið að meta íslenskukunnáttu nemenda. Gott og...

Styrkur vegna heimaskóla - Iceland Lichenstein Norway grants

Nú í desember fengu við þær gleðifréttir að við fengum veglegan styrk til að búa til heimaskóla í samvinnu og samstarfi við tvo pólska skóla og eina ráðgjafaþjónustu. Verkefnið gegnur út á að þróa, prófa og útfæra heimaskóla í samvinnu og samstarfi við foreldra á Póllandi og á Íslandi. Með tilraunaskólaleyfi skóla í skýjunum og tilkomu Námsgagnatorgsins getum við gert tilraunir sem munu með tímanum breyta hefðbundnu landslagi grunnskólamála. Við erum spennt og gríðarlega þakklát traustinu sem fylgir því að fá að útfæra skemmtileg og skapandi verkefni með okkar eigin fólki og vinum okkar í Póllandi. Við óskum hér með eftir fjölskyldum til að vinna þessa tilraun með okkur fyrir skólaárið 2022 til 2023. Áhugamir vinsamlegast sendið póst á kristrun@ais.is. Gleðilegt nýtt og spennandi ár Kristrún Lind Birgisdóttir Stofnandi og eigandi Ásgarðs og skóla í skýjunum. 

Nýr skólastjóri Ásgarðs - skóla í skýjunum

Esther Ösp Valdimarsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri Ásgarðs - skóla í skýjunum. Hún tekur við starfinu í dag 1. desember. Esther er með MA í mannfræði með áherslu á börn og kynjafræði auk kennsluréttinda. Esther hefur áratuga reynslu af vinnu með ungmennum, í félagsmiðstöðvum og í kennslu og barnavernd svo fátt eitt sé nefnt. Esther hefur starfað að rannsóknum á högum ungmenna út frá kynjuðu sjónarhorni. Hún hefur hlotið hvatningarverðlaun fyrir framlag til menningarmála og er óþreytandi í að leggja sig fram um að breyta tækifærum ungs fólks svo um munar.  Við óskum Esther til hamingju og hlökkum til að vinna með henni að því að gjörbreyta aðgengi barna að námi.

Ásgarður – Erindi á morgunverðarfundi Sambands Íslenskra sveitarfélaga. Erum við á réttu róli með skólann?

Kristrún flutti erindi á morgunverðafundi Sambandsins um skólamál. Umræða sem hófst fyrir ári síðan á skólamálaþingi sambandsins. https://youtu.be/zyn5mM6Z3QA

Read aloud STEM

Það heyrist oft í umræðunni að ástæða þess að drengir hafi slakan lesskilning sé að þeir lesi ekki nóg. Fyrir ansi mörgum árum fékk ég spurningu frá föður eins nemandans í umsjónarbekknum um hvernig væri hægt að bæta árangur hans á lesskilningsprófum. Ég nefndi að eina leiðin væri að lesa texta, lesa bækur eða tímarit. Faðirinn svaraði því til að drengir lesi ekki í dag og spurði hvað annað væri hægt að gera. Það sést á þessari spurningu og svari foreldrisins að það sem skipti máli var útkoma drengsins úr prófi en ekki áhyggjur af því að sonurinn les aldrei neitt og var með slakan lesskilning í öllu námi. Annað sem heyrist oft er að nemendur sjái ekki tilgang í því sem við erum að gera og geri því ekkert. Ég hef sjálf nefnt það þegar ég tala um bráðgera nemendur, því ég hef séð að það hjálpar oft að útskýra tilgang verkefna fyrir þeim til að þeir nenni að gera þau. Eitt sem hjálpar er að vera með skýrar verkefnalýsingar, skýr námsmarkmið (hvað á nemandinn að læra?) og flott viðmið um á...

Valgreinar á unglingastigi þvert á sveitarfélög

Það er mikilvægt að skrá merka viðburði. Við erum stolt og hrærð yfir því að hafa geta stigið þetta ótrúlega og mikilvæga skref að kenna valgreinar ÞVERT á fámenna skóla á landsbyggðinni. Þetta eykur stærðarhagkvæmni OG þjónustu við ungmenni. Ímyndum okkur að nemendur OG kennarar geti unnið störf við hæfni. Það skiptir kennara líka máli að geta kennt þar sem sérþekking þeirra liggur. Kennari lunkinn í bragfræði á Flateyri getur tekið að sér að vinna með nemendum um land allt á sama tíma og aðrir einblína á menntaskólastærðfræði eða tölvuleikjahönnun. Frábærum áfanga var náði í byrjun september þegar nemendur úr níu mismunandi skólum mættu í tíma í tvær fyrstu valgreinarnar okkar. Flestir höfðu valið tölvuleikjahönnun (og þurftum við því að skipta þeim í tvo hópa) en kennarinn í því fagi er starfandi tölvuleikjahönnuður í Noregi. Hitt valfagið er eitt af verkefnunum okkar sem margir kennarar eru nota þessa dagana og heitir Hver er ég? Valgreinaverkefnin eru samþætt og þar er unnið með f...

Skóli í skýjunum fær starfsleyfi!

Ásgarður - skóli í skýjunum fékk starfsleyfi 18. maí 2021 til að starfrækja þróunarskóla á grunnskólastigi alfarið í skýjunum. Leyfið er veitt til þriggja ára. Menntamálastofnun er falið að fylgjast náið með verkefninu á tímabilinu og munu gera heildarúttekt á tilraunatímabilinu. Við í Ásgarði erum stolt og ánægð með það traust sem ráðherra sýnir okkur með því að heimila starfsemi skólans. Það er tímabært fyrir margra hluta sakir að valkostur um skólastarf án staðsetningar sé fyrir hendi, byggðarsjónarmið vega þungt, frelsi til flæðandi búsetu sem og sem valkostur fyrir börn og ungmenni sem eiga erfitt með margmenni. Það er mikilvægt að fram komi að það er að miklu leyti áræðni og hugrekki sveitastjórnarmanna í Reykhólahreppi að þakka að leyfið er í höfn- ekki síst Árnýjar Haraldsdóttur oddviti Reykhólahrepps og formanni mennta og menningarmálanefndar sem hefur haft óbilandi trú á verkefninu.  Tækifæri við útfærslur á skólastarfi í skýjunum eru fjölmörg. Nemendur tengjast í gegnum ...